mercredi 30 janvier 2008

Ítalía, París, Genf, Belfast, London

Við erum búnar að komast að því afhverju franskt fólk er mjótt .. það er alltaf úti að hlaupa. Það er svona stígur meðfram vatninu þar sem iðulega er rosalega mikið af fólki að hlaupa á öllum tímum og á öllum aldri. Ég sá t.d. það krúttlegasta sem ég hef séð um daginn, þá var ég að labba í skólann um hádegisbil og mætti manni sem var ekki degi yngri en 75 ára, hugsanlega eitthvað eldri. Nema hvað að hann var bara að skokka alveg lööööturhægt, en skokkandi þó. Mér hlýnaði af einhverjum ástæðum rosalega um hjartarætur við þetta.
Það er alveg rosalega margt að gerast um þessar mundir. Um hver mánaðamót róterast bekkirnir mjög mikið, mikið af fólki fer og mikið af fólki kemur sömuleiðis, þess vegna verður á morgun hjá öðrum kennaranum mínum (þessari óléttu) spóla og nammi og á föstudaginn verður hjá hinum kennaranum mínum svona múltíkúltúral ,,repas" (svona málsverður), þar sem allir í bekknum (svona 12 þjóðerni) koma með einhvern rétt frá sínu landi. Ég ætla að baka pönnukökur með sykri og rúlla þeim upp, soldið eins og crepe, en það verður að hafa það.
Þetta repas er sko ekki það eina sem ég er að fara að gera á föstudaginn, ekki aldeilis. Því að við, fjórar stelpur úr skólanum, drifum í því í dag að leigja bíl á föstudaginn og cottage í Tuscana héraðinu í Ítalíu. Við ætlum að fara í ródtrip til Ítalíu, heimsækja Cinque terre, Pisa, La Spazio o.s.framv. við erum líka búnar að finna vínekru rétt hjá bænum okkar, sem samanstendur af 1000 manns, og vínekran býður uppá vínsmökkunartúr. Þetta var eitt það mest spontant sem ég hef gert!
Ég kem svo heim á mánudagskvöld því að þá er frí í skólanum útaf stöðuprófunum. Svo líður einn dagur, þriðjudagur, svo kemur miðvikudagur. Hann verður alveg frábær af mörgum ástæðum: Ég hitti Andra, ég hitti Vilborgu og Katrínu, ég verð tvítug, ég fer til Parísar, ég fer á Smashing Pumpkins og svona mætti lengi telja. Ég hlakka alveg hryllilega mikið til, þess vegna er soldið gott að Ítalíuferðin kom þarna í millibilinu svo ég hafi hana til að hlakka til svona í millitíðinni.
Svo erum við að skipuleggja ferð til London og Belfast um miðjan mars en áður en ég fer í hana kemur mamma mín góða í heimsókn og við ætlum að túristast um Annecy og fara svo í helgarferð til Genf. Mikið hlakka ég til!

3 commentaires:

solveigr8 a dit…

Þú ert úti um allt kona! Vá hvað það er gaman að það skuli vera svona gaman hjá þér bebecake.

solveigr8 a dit…

Þú ert úti um allt kona! Vá hvað það er gaman að það skuli vera svona gaman hjá þér bebecake.

Helga a dit…

Þú verður að blogga til að fá komment! en þú ert samt góð. Vona að París hafi líka verið góð.