Á morgun er ein stelpa í bekknum mínum að bjóða í latínópartí þar sem verður fahitas, tacos, sangria og fínerí, ég og Dayna ætlum að koma með gvakamólí sem Dayna býr til. Hún er alltaf að búa til eitthvað svona.
Annar kennarinn minn er rosalega ólétt og er að fara að hætta í næstu viku því hún er að fara í barneignarfrí, en hún er rosa fyndin því hún er með ást á heilanum. Núna er þess vegna stílabókin mín stútfull af frönskum ástarfrösum, ég væri sko ekki í vandræðum með að segja einhverjum frakkanum upp á frönsku!
Það er fáránlegt hvað lífið gengur strax sinn vanagang hérna ég er strax orðin uppiskroppa með hluti til að segja í bloggi þó að mér leiðist aldrei eða neitt svoleiðis, þetta er bara allt orðið svo venjulegt.
Á laugardaginn fer ég aftur á bretti. Það verður gaman.
Ég sagði konunni í afgreiðslunni að Madame Blanc-Paque hefði komið í heimsókn til okkar þegar við vorum ekki þar og hún talaði við hana svo það er ekkert nýtt að frétta af þeirri elsku.
Núna ætla ég að fara að rölta heim á leið það er soldið leiðinlegt að vera í tímum eftir hádegi því að þá missir maður af birtunni þegar maður labbar heim.
-Halla
ps. Hvað í ósköpunum er eiginlega að gerast með borgina? Mamma og þið sem lesið þetta megið endilega segja mér aðdragandann að þessari vitleysu!
Aucun commentaire:
Enregistrer un commentaire