dimanche 20 janvier 2008

sunnudagskvöld

Ég fór aftur á bretti í gær og það var rosa gaman og ég var svakalega góð. Snjórinn var geðveikur sem og svæðið. Fór þó ekki til Sviss í þetta skiptið.

Um kvöldið fórum við að partíast með krökkum úr skólanum sem var mjög gaman. 
Mér til mikillar gleði og ánægju eru komnar tvær íslenskar stelpur í skólann, mér til enn frekari ánægju er önnur stelpan Margrét Soffía sem spilaði með mér á fiðlu í áraraðir. 
Ég er því aftur farin að hugsa á íslensku, en hugsanir mínar voru orðnar eitthvert bland af frönsku, ensku og íslensku. 
Núna erum við Dayna hjá Möggu og Arndísi en íbúðin þeirra er soldið mikið betri en okkar, sbr. sjónvarp, internet og þvottavél.
Ég er orðin ástfangin af Annecy og get farið í göngutúra þess vegna allan daginn og alltaf er maður að sjá eitthvað nýtt, það er farið að hlýna mjög mikið og í dag var yndislegt veður. 
Á morgun ætla ég að leigja mér hjól fyrir næstu fjóra mánuðina.
Frakkar eru mjög skrítnir, þeir sýna ekki landsleiki í handbolta í sjónvarpinu ... bara tennis og skíði.

-Halla

1 commentaires:

Sólveig Ragna a dit…

Þú ert eignlega bara heppin að hafa ekki tækifæri til þess að sjá sjálfsmorsðtilraunir íslenska landsliðsins. Það er ekki gott fyrir sálina að horfa á það