mardi 15 avril 2008
Nýr Kani
Ég, að sjálfsögðu, gat ekki setið á mér og fór að spyrja hana um afstöðu hennar til giftinga samkynhneigðra. Út frá þeim áhugaverðu samræðum komst ég að því að hún lítur á samkynhneigð sem geðsjúkdóm og því ættu hjónabönd þeirra ekki að vera leyfð, en Guð elskaði samt alla, líka geðsjúka morðingja (sem hún notaði í alvöru sem dæmi) sem ráða ekki við hegðun sína ... líkt og samkynhneigðir.
Ég verð að viðurkenna að ég hef varla lesið staf í biblíunni en ég efast um að það standi þar að samkynhneigð samsvari því að vera veikur á geði.
Hún drekkur heldur ekki vín því að, samkvæmt öruggum heimildum, var það ekki vín sem Jesús og félagar drukku heldur bara vínberjasafi og biblían samþykki ekki áfengisdrykkju því að áfengi lætur fólk gera hluti sem ekki er á ábyrgð þeirra sjálfra, svo sem ósiðlega hluti með manneskju af sama kyni. (Ath. að ég nota eingöngu dæmi sem hún sjálf notaði)
Að öðru leyti er hún hin indælasta.
En á morgun fer ég til Genf með Arndísi og Matthieu og bráðum fer Arndís heim, það finnst mér leiðinlegt.
Svo erum við Julie og Charlotta búnar að kaupa lestarmiða og bóka hostel í Avignon um næstu helgi! Veivei!
vendredi 11 avril 2008
ó ó og æ æ
ó ó ... allt í volli!
dimanche 30 mars 2008
Ein saga
Autour du Lac d'Annecy
mardi 25 mars 2008
nýjastanýtt
samedi 15 mars 2008
Obbosíí
Jæja já
Það er margt búið að gerast þennan mánuð síðan ég bloggaði síðast. Óvænt ferð til Íslands og mamma kom svo í heimsókn. Það var alveg frábært. Við vorum hérna í Annecy í tvo daga og við vorum smá duglegar að versla hérna og skoða okkur um. Fórum á safn þar sem við sáum mjög skrítnar samsetningar af alvöru og platdýrum og sáum líka fiskabúr sem voru mjög lítil með mjög mörgum fiskum í og ekkert svo vel hirt, þar sem í einu fiskabúrinu flaut dáinn fiskur á yfirborðinu meðan félagar hans gæddu sér á honum. Mjög smekklegt. Í Lyon gerðum við alveg ýmislegt. Röltum samt bara aðallega um, eða hjóluðum seinni tvo dagana, því það er svo sniðugt að það er hægt að leigja hjól útum allt á götum Lyon, þó að það hafi verið smá vandasamt í byrjun sáum við sko ekki eftir því eftirá, eftir að vera búnar að þræða götur Lyon á hjóli. Veðurguðirnir voru heldur ekki að spara góðviðrið sem gerði þetta allt hið yndislegasta.
Áður en ég fór til Íslands fór ég í ostaverksmiðju þar sem við fengum að gæða okkur á hinum ýmsu tegundum af Savoie og Haute-Savoie ostum og sáum hvernig þeir allir voru búnir til. Mjög skemmtilegt og áhugavert og ostarnir voru hver öðrum ljúffengari!
Á fimmtudaginn þá fór ég á hestbak eftir skóla, það var óótrúlega gaman. Veðrið var ekkert smá gott. Staðurinn þar sem við fórum á hestbak er svona hálfgerður fjölskyldu- og húsdýragarður þar sem er svona Adventure Park einhver og hægt að príla og hafa gaman þar og svo við hliðiná því eru öllum mögulegum dýrum troðið saman bakvið girðingu, sáum litla rosalega sæta geitakálfa og dádýr og á milli þeirra spígsporuðu hanar, svo voru líka kettir og hundar og fleira skemmtilegt. En nema hvað, þarna voru líka rosalega margir hestar af öllum stærðum og gerðum, held meiraðsegja að hestarnir sem við fórum á hafi getað verið samlandar mínir, en þar sem ég var sú í hópnum sem mest hafði farið á hestbak fékk ég brjáluðu hryssuna í hópnum, hún var ekkert sérstaklega hress með þetta allt saman og varð að vera síðust því annars var hún alltaf að sparka í hestinn bakvið sig, þegar við vorum svo svona um það bil hálfnuð með túrinn trylltist hryssan mín, reis upp á afturfæturna sína byrjaði að hlaupa í allar áttir burt frá hópnum í einhverju kasti, þetta var nú samt sem betur fer bara stundarkornstryllingskast svo hún róaðist eftir smá stund án þess að ég hefði henst af baki, en þetta var samt allt hið besta mál og reddaðist allt saman.
Síðustu tvo daga er búið að vera brjálað veður, rúmlega 20 stiga hiti og sól og blíða. Við nýtum okkur það að sjálfsögðu og erum alltaf bara í piknikkum við vatnið og í sólbaði. Það er svo frábært hvað sólin hleypir líka miklu lífi í bæinn, göturnar fyllast af fólki og það fer einhvernveginn allt í gang. Væri mjög mikið til að koma aftur hingað að sumri til, held að það hljóti að vera geðveikt!
Næsta vika í skólanum verður tileinkuð Edith Piaf, við ætlum að hlusta á fullt af Edith Piaf lögum horfa á La vie en rose, hlusta á viðtöl við hana og reyna að analysera hana eitthvað, ég hlakka mjög mikið til þar sem hún er ein af mínum uppáhalds.
Núna er ég búin með 10 vikur í skólanum og á bara 6 eftir, það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt, eiginlega bara þriðjungur eftir! Það er svona hálfgerð bittersweet tilfinning, mér líður ofsalega vel hérna og það er frábærlega gaman í skólanum en auðvitað verður ótrúlega gott að koma heim og knúsa alla sem maður saknar.