mardi 15 avril 2008

Nýr Kani

Það er ekki að spyrja að heppni minn í herbergisfélamálum. Núna þegar sílíkonan mín er farin er komin önnur bandarísk stelpa í íbúðina. Hún fylgir, að mér skilst, því sem næst kemst Krossinum; hún fylgir bókstaflega öllu því sem stendur í biblíunni. (Ég biðst afsökunar á staðreyndarvillum ef eru, en ég er ekki vel að mé í þessum málum)
Ég, að sjálfsögðu, gat ekki setið á mér og fór að spyrja hana um afstöðu hennar til giftinga samkynhneigðra. Út frá þeim áhugaverðu samræðum komst ég að því að hún lítur á samkynhneigð sem geðsjúkdóm og því ættu hjónabönd þeirra ekki að vera leyfð, en Guð elskaði samt alla, líka geðsjúka morðingja (sem hún notaði í alvöru sem dæmi) sem ráða ekki við hegðun sína ... líkt og samkynhneigðir.
Ég verð að viðurkenna að ég hef varla lesið staf í biblíunni en ég efast um að það standi þar að samkynhneigð samsvari því að vera veikur á geði.
Hún drekkur heldur ekki vín því að, samkvæmt öruggum heimildum, var það ekki vín sem Jesús og félagar drukku heldur bara vínberjasafi og biblían samþykki ekki áfengisdrykkju því að áfengi lætur fólk gera hluti sem ekki er á ábyrgð þeirra sjálfra, svo sem ósiðlega hluti með manneskju af sama kyni. (Ath. að ég nota eingöngu dæmi sem hún sjálf notaði)
Að öðru leyti er hún hin indælasta.
En á morgun fer ég til Genf með Arndísi og Matthieu og bráðum fer Arndís heim, það finnst mér leiðinlegt.
Svo erum við Julie og Charlotta búnar að kaupa lestarmiða og bóka hostel í Avignon um næstu helgi! Veivei!

2 commentaires:

Anonyme a dit…

Hvaa rosalega ertu óheppin!

kv, Andri

solveigr8 a dit…

Já ég vissi það. Eysteinn kom og heilsaði upp á alla. Hann kom heim á sama degi og þú. Þú komst ekki, Kannski varstu samt á kóræfingu. Ég veit það ekki vegna þess að ég var ekki á kóræfingu.

bless