Ég og Arndís fórum semsagt í hjólaleiðangur í gær, 50 km hringur í kringum vatn Annecy. Veðrið var ólýsanlega gott, ekki ský á himni, glampandi sólskin og a.m.k. 20 stiga hiti!
Við keyptum smá nesti og vorum lagðar í hann upp úr hádegi. Ferðin var í einu orði sagt ótrúleg! Við stoppuðum soldið oft og tókum myndir, fórum niðrað vatninu og böðuðum fæturna í því og fengum okkur nesti. Stoppuðum á veitingastað og fengum okkur ís í frekar mikilli auðn.
Myndirnar segja meira en mörg orð:
Ég er búin að eyða síðustu 75 mínútunum í að reyna að uploada myndum hérna en það gengur ekki neitt svo að ég verð að benda bara á www.flickr.com/photos/hallatryggva þar eru komnar nokkrar myndir úr ferðinni góðu.
Ps. Undur og stórmerki gerðust, ég fékk smá lit í ferðinni!!! Það finnst mér í alla staði ótrúlegt!
Aucun commentaire:
Enregistrer un commentaire