dimanche 30 mars 2008

Ein saga

Á föstudaginn fór ég á snjóbretti það gekk rosalega vel og ég er orðin rosa klár en eitt gerðist í þeirri ferð. Það er nefnilega strákur/maður sem vinnur þarna á skíðasvæðinu sem er mjög ræðinn og harðneitar að tala frönsku því að hann vill æfa enskuna sína sem er mjög mjög bjöguð. Nema hvað, að í eitt skiptið þegar rassalyftan er á leiðinni að toga mig upp segir strákurinn við mig: Good luck mister! Ég kippti mér nú ekkert upp við það, enda orðin vön enskumistökum Frakka. Grey strákurinn hafði þó áttað sig á þessum mistökum sínum og ákvað að biðjast afsökunar næst þegar ég fór í lyftuna, samræðurnar urðu eftirfarandi:
Strákur (með mjöög miklum frönskum hreim): Uhh I have really sorry that I have before call you mister!
Ég: No no it's ok. I don't care.
Strákur: Uhh .. because uhh you are not mister uhh because you are not man.
Ég: Uhm, no I know. But it's ok!
Strákur: uhh ... but if you are .. you know .. uh how you say .. uhh comment dire ... if you are uhh transsexual I have uh no problem with that.

... sem betur fer dró lyftan mig upp á þessum tímapunkti. 
Frakkar eru stórfurðulegir!

3 commentaires:

solveigr8 a dit…

HAHAHAAHAHA kvenlega Halla mín.

4 vikur segiru. Hlakka til þá.

BirtaDögg a dit…

En gaman. Tegar tu kemur heim og eg kem heim og tegar tad er snjor a Islandi forum vid a bretti.Díll ?

Bright

Helga a dit…

haha þetta var mjög fyndið. bloggaðu meira, barn! og farðu svo að koma heim.