samedi 26 janvier 2008

obb

Það hefur gengið upp og niður hjá mér síðustu daga, bókstaflega. Er búin að vera svaka veik, fór ekki í skólann í gær, né í matarboðið sem mér var boðið í gærkvöldi, né í skíðaferðina með skólanum í dag. Það er ekki gott, ég er samt öll að hressast.

Það er æðislegt veður í dag, sól og hiti. En ég ætla samt að taka því rólega. Sat bara útá svölum áðan og las Harry Potter á l’école des sorciers.

Ég er búin að kaupa mér rosa mörg DVD t.d. Kill Bill 1&2 og ég kunni ekki að setja enskan texta svo ég horfði á númer eitt á frönsku. Það var mega fyndið. Ég keypti samt líka franskar myndir og við Dayna ætlum að vera svaka duglegar að horfa á franskar myndir og læra rosa mikla frönsku.

Um daginn fórum við í bíó á franska mynd sem heitir Enfin Veuve sem þýðist á íslensku, Loksins Ekkja. Þetta var svona súr frönsk grínmynd, það var eiginlega öllum sama þó að eiginmaðurinn hefði dáið en voru aðallega að spá hvort hundurinn hefði nokkuð slasast, en hún var frekar skemmtileg og ég gat alveg fylgt og skyldi næstum allt. Aðalástæðan þó fyrir að ég fór í bíó var að ég er komin með fráhvarfseinkenni frá poppi, og svona poppbaunir fást bara alls ekki í Annecy. Ég fann popp útí búð en það var að sjálfsögðu sykrað, svo að, ég var farin að hlakka svakalega til að fá almennilegt saltað bíópopp, nema hvað, svo komum við í bíóið, ég hleyp að poppafgreiðslunni og spyr hvort poppið sé ekki alveg örugglega saltað, ekki aldeilis! Mikið varð ég fyrir miklum vonbrigðum.

En ég á samt von á sendingu frá Íslandi, einn poki ostapopp og tveir dallar Orville’s poppbaunir. Ég hlakka til!

Meðan ég kvarta undan poppleysi kvartar herbergisfélagi minn mikið undan hand- og fótsnyrtileysi, hún er víst vön að fara í handsnyrtingu einu sinni í viku og fótsnyrtingu einu sinni á tveggja vikna fresti, svo finnast henni Frakkar líka vera soldið loðnir því að hún finnur hvergi stofu þar sem hún getur fengið vax. Ég varð að viðurkenna fyrir henni um daginn að ég vissi nú varla hvað allir þessir hlutir væru. Henni fannst ég vera stórfurðuleg.

Það verður nú samt að taka tillit til þess að við komum alveg frá sitthvorum heiminum, ég fékk t.d. ekki gervibrjóst í útskriftargjöf 18 ára … frá foreldrum mínum.

2 commentaires:

solveigr8 a dit…

Þú ert náttúrulega stórfurðuleg elsku barn. Þú átt alla mína samúð í poppleysinu, ég hef aðeins fengið að kynnast því að þér finnst popp ekkert vont. Þegar þú kemur heim getum við beðið mömmu að poppa fyrir okkur. Láttu þér batna og hafðu það gott! Bið að heilsa Harry

Sunna a dit…

Hæ Halla, ég varð bara að koma því á framfæri að ég er að lesa sömu bók og þú, og það hérna bara í næsta nágreni! Stórmerkilegt