mardi 25 mars 2008

nýjastanýtt

Nú er það í fréttum af sílíkonunni minni að hún er víst á leið heim. Eftir að hafa farið til höfuðborgar Bretlands að hitta mömmu sína komst hún loksins að því að Annecy væri ekki fyrir hana. Svo að ég fæ nýja bandaríska stelpu í íbúðina síðasta mánuðinn. Jibbíjú!

Það er svosem ekkert mikið búið að gerast. Fór á bretti í síðustu viku og er orðin svaka svaka góð, get beygt og allt. 
Á miðvikudaginn fór ég í afmæli hjá tveimur frönskum strákum, það var rosa spes, það var búningapartý og hérna taka þau svoleiðis þema rosa alvarlega, það voru ghostbusterar, zorro, Lína Langsokkur og allt þar á milli. Því miður fyrir mig fórum við svo á bar þar sem peysunni minni og myndavélinni minni með nánast fullu 2 gb korti var stolið. En kvöldið var engu að síður rosa gott og ég talaði heilan helling frönsku og fékk fullt af hrósum sem var mega gaman! 
Á föstudaginn fórum við í keilu um kvöldið sem var rosalega gaman fyrir utan hvað ég er rosalega léleg í þeim leik. 
Um helgina erum við svo búin að gera helling,á laugardaginn eldaði Matthieu fyrir okkar típískan rétt frá héraðinu með miklum osti og pulsum böðuðum í rauðvíni, það var rosalega gott!
Svo héldum við uppá páskana með herlegheitum á sunnudaginn, hittumst hópurinn heima hjá Arndísi og co. þar sem sænska mafían (þau eru í alvöru svona 10) eldaði sænskar kjötbollur, einhvern kartöflurétt, egg með kavíar, skonsur o.s.framv. o.s.framv. 
Okkar Arndísar framlög voru íslensk páskaegg sem vöktu mikla lukku.

Í dag fór ég svo í próf í skólanum sem var soldið erfitt en gekk samt mjög vel, sátum alveg í rúma 2 tíma. 
Næst á dagskrá er svo meira bretti, Genf, Avignon og Arles. Hlakka mikið til.

4 commentaires:

Anonyme a dit…

kannski verður nýja stelpan líka með sílikon eða botox.

ég hlakka til að fá þig heim. þá skulum við borða popp og horfa á mean girls.

solveigr8 a dit…

Mikið varstu heppin. Sænskar kjötbollur eru voða góðar

Anonyme a dit…

Go Halla !

Ávallt gleðilesningin mín í ergelsinu héðan frá Austurvelli :)

Kus&Kram

BirtaDögg a dit…

Gaman hja ter. Eg a bara 2 vikur eftir. Otrulegt. Skil tetta ekki. Bradum verdum vid badar bara komnar heim.