dimanche 10 février 2008

20 ára í París

Ég veit að þetta er blogg númer tvö í dag en ég gat ekki bloggað hitt fyrr en núna.

Núna er ég nýkomin frá París. Það var yndislegt. Fór á Smashing Pumpkins sem spiluðu fáránlega gott og langt sett. Fór með Andra á alla túristastaðina og aldrei hélt ég að ég myndi segja svona klisju ... en það er alveg ofsalega gaman að vera ástfangin í París. 
Dagarnir liðu eins og skot og síðasta kvöldið fórum við Andri út að borða og fórum svo á æðislegan jass-stað í gamalli dýflissu þar sem var live jass band með frábærum hljóðfæraleikurum og fólk á öllum aldrei að dansa samkvæmisdansa. Þetta var eitt besta kvöld sem ég hef upplifað .. framan af. 

Núna tekur skólinn við aftur eftir allar þessar ferðir. Nú hlakka ég til að hitta mömmu mína.

1 commentaire:

BirtaDögg a dit…

Er bloggid dautt ?

-Bright in Peru